1104 varð til í desember 2020 til að heiðra föður Dagmars, Gunnar Mýrdal heitinn, frábæran hjartaskurðlækni sem helgaði lífi sinu til að bjarga öðrum. Afmælisdagur hans var 11. apríl og hefur því 1104 mikla þýðingu fyrir okkur.

Hugmyndin að vörumerkinu er að hanna klassíska skartgripi sem passa fyrir öll kyn. Elegant skartgripir í bland við grófa skartgripi sem passa fullkomnlega við gallabuxur og stuttermabol sem og við fínni tilefni. Við erum staðráðin í að koma með persónulega skartgripi í bland við klassíska skartgripi.

Við leggjum hjarta okkar og sál í vörurnar okkar og vonum að viðskiptavinir okkar geti fundið það þegar þeir ganga með skartið okkar.